Jun 10, 2005
Ég er reyndar ekki búin að vera mikið hérna í tölvunni og hef ekki getað verið neitta að skrifa mikið. Við hérna í vinnunni erum nefnilega búin að vera að setja upp sjónvarpskerfi upp í nýja hótelinu niðrí miðbæ! Átti fyrst að vera bara þarna til að setja batterí í fjarsteringarnar en var svo bara sett í það að bora og tengja! Já það er ekkert minna! Kannski bara að ég fari í rafvirkjan! hehehehe ég er búin að vera inn í þessu hóteli á ganginum allan tímann og fyrsta daginn þá vissi ég ekkert að ég var að fara þangað svo ég var bara í bleikum hlýrabol og hettupeuysu, svo þegar ég mætti þarna inn var svo viðbjóðslega heitt og ég úr peysunni settist á einhvern kassa og byrjaði að bora og tengja boxinn saman! Frekar fyndið að vera sett í þetta! En það var bara mjög gaman, góð tilbreyting að komast frá tölvunni!!
Ég er svo búin að skrá mig í skóla en fæ reyndar ekki að vita hvort að ég komist inn fyrr en í lok mánaðarins! En ég er bara að vona og ætla að reyna að taka þetta bara með trompi! Fara í dagskóla og klára þetta bara af! Það verður nú helvíti næs að vera orðin stúdent! ohhh get ekki beðið eftir að geta sagt.. --ég er stúdent!-- :D
Svo er það bara Pravda í kvöld! Var að fá mér innlegg, er búin að vera að drepast í bakinu í ég veit ekki hvað langan tíma! Eginlega bara síðan í nóvember eða eitthvað, var svo orðin ágæt en er núna í 3-4 mánuði búin að vera að drepast! Er bara orðin þreytt þegar ég er búin að vinna. Rétt drulla mér á æfingu svo sé ég bara sófann í hyllingum! Svo vonandi á þetta eftir að lagast og ég verð komin á gott ról seinna í mánuðinum! þarf samt eitthvað að ventjast þessu og get örugglega ekki verið með þetta í alla nótt. Líka þar sem ég er að fara að vinna kl 21:00 til svona 07:00
Mér finnst samt eins og ég lappirnar séu ekki jafn langar núna því að innleggurinn vinstra meginn er þykkri. En ég er víst að labba rétt núna! Loksins.. og þarf bara að venjast þessu svo bakið fari í lag! :)
En bara góða helgi og stórt knús! :*
Posted at 08:10 am by rosabjork
Permalink
May 30, 2005
Mánudagur til mæðu en maður er nú frekar ferskur á því! ;)
Ég var að vinna alla helgina! Það var ágætt en frekar erfitt þar sem að ég er orðin svo slæm í bakinu! ;( Núna er það bara að koma sér af stað og gera eitthvað í málinu. Ætla að gera það í vikunni. Kaupa mér góða skó go innlegg og eitthvað! :D
Ég er að vinna með alveg rosalega skemmtilegu liði! Allir þvílíkt skemmtilegir og notalegir í umgengni! Engin leiðindi bara allir tilbúnir að hjálpast að.
Júlía kom svo í heimsókn á föstudaginn, alltaf svo rosalega gaman að hitta hana! Henni gegnur svo vel og ég er svo ánægð fyrir hennar hönd! :D
Heyrðu já var næstum búin að gleyma en ég sá svolítið furðulegt í gær!! Var að rúntinum í gær og það var alveg þvíkík umferð og ég var ekkert að botna í því afhverju það var svona hrikalega mikil umferð! Allavega þá sé ég allt í einu stelpu á götunni!!!!!! Bara ráfaðu um á milli akgreina eins og hún væri Palli einn í heiminum! Var niðurlút og gekk þvílíkt hægt! Sá að það var eitthvað fólk búin að stoppa bílana sína og voru að fara sækja hana! Hún var frekar þybbin eða reyndar svolítið feit bara, ok! Hún var FEIT! Hefur örugglega verið í einhverjum skrýtnum hugleiðingum og hefur örugglega verið að byðja um hjálp. Allavega var frekar sorglegt að sjá þetta! :(
Kominn matartími og maginn minn öskrar á mat svo bæbæ :D
Posted at 05:35 am by rosabjork
Permalink
May 25, 2005
Já ég fór og tók aðeins á því á æfingu í gær. Frekar langt síðan ég fór seinast. Eða á fimmtudaginn.
Lajla kom svo í heimsókn í gær. Hún er að fara til Mallorca í þessuðum skrifuðum orðum!!!!! :( Langaði helst að pakka mér saman og stinga mér í vasann hennar! Öfunda hana ekkert smá mikið! Djöfull væri gaman að fara eitthvað út og láta sólina sleikja kroppinn!!! :)
Annars segi ég bara góða ferð vinan og endilega fáðu þér einn kaldan á strödinni fyrir mig!! ;-/
Ætla ekki að hafa þetta lengra í dag! En endilega tjáið ykkur eða allavega skrifa í Gestó! ;)
Posted at 03:46 am by rosabjork
Permalink
May 23, 2005
Alveg mögnuð helgi... ef ekki bara betri!!! :)
Hæ hæ.. þetta er alveg búið að vera mögnuð helgi. Á Föstudaginn fór ég til Ólafsvíkur. Var alveg að drepast í bakinu á leiðinni og reyndar eitthvað daginn áður svo að eg byrjaði á því að fara í ljós og nudd á laugardeginum. Þetta var alveg rosa nudd en hrikalega vont! Ég má greynilega ekki bara byrja að æfa á fullu og hætta svo bara strax án þess að gíra mig niður!!!! ;( Hún sagði mér að það mundi ekki vera gott að fara að æfa á fullu nema að ég færi oftar í nudd og léti laga þetta!
Við fórum svo í hellaskoðun. Það var ekkert smá gaman og þetta var alveg hrikalega flott! Fórum í 3 hella. Einn íshelli og hann var ekkert smá langur. Við vorum bara 4 sem voru eftir og hinur voru farnir þegar við föttuðum að við vorum búin að labba að röngum endi til baka! Það var alveg kolniðamyrkur og maður sá ekkert nema rétt fyrir framan mann með vasaljósið.
Um kvöldið var eldað alveg rosa góðan mat og horft á Evrovision. Það var ekkert smá fyndið að horfa á þetta! Sumt var bara einstaklega fyndið! ;)
Við fórum svo í party þarna um kvöldið og ekta sveitaball!! hehehe ;) það var rosa fínt en þetta sveitafólk kann lítið að drekka! Maður fór nú bara strax heim eftir ballið! Sem betur fer því að það fór allt í háloft þarna í einu eftir partýinu!
Vaknaði svo um kl 11 næsta morgun! Við fórum að skoða eitt rosa flott hótel sem er víst eitt dýrasta hótelið hérna. Við ætluðum að fara í snósleðaferð en það var ekki nógu gott veðrið, eða reyndar var alveg fínt veður en það var bara svo skýjað þarna uppi! Í staðinn var bara farið upp í bústað í pottinn.
Þetta var bara hrikalega gaman og ekkert smá afslappandi! Ég alveg elska það að fara svona út á land til að gera eitthvað svona gaman! Er rosa sátt með þessa helgi og það var bara allt fullkomið!
Það var reyndar einhver ferð með Pravda á sunnudag en ég fór ekki. Þetta var bara ein af fyllerísferðum þeirra! Reyndar frítt að drekka en ég ákvað að láta mig samt vanta! Sé ekkert eftir því samt! :D
Kv. Rósa litla sveitastelpa!! :D
Posted at 12:23 pm by rosabjork
Permalink
May 20, 2005
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!! ;D
Þetta finnst mér sko mest fyndið!!!!!!!!! ---SELMA KOMST EKKI ÁFRAM!!! hehehehe jæja ætli fólk haldi Evróvisjónpartý um helgina????? ;) Nei ég bara spyr? Við verðum allavega ekki með næst svo við getum verið róleg það ár.
Annars er það bara af mér að frétta að ég er alveg hrikalega kát og get ekki beðið eftir að fara út á land Í KVÖLD eftir vinnu!! ;) Ætla að taka litla barnið mitt með hann Snúð. Íris ætlar að vera svo hrikalega góð að lána mér búrið sitt svo hann verði ekki vitstóla af hræðslu á leiðinni. Við vorum reyndar búin að ákveða að borða fínan mat og horfa á þetta Evróvisjóndæmi á stóru tjaldi en hehehehe ætli maður geri það eitthvað núna??? Maður veit ekki, kemur allt í ljós.
Get sem sagt ekki beðið eftir að komast úr vinnunni það er svo geggjað veður!! ;D Kannski pínu kalt en það er sól svo ég kvarta ekki!! ;)
Jæja farin að gera eitthvað að viti! --Verið nú svo góð að tjá ykkur eitthvað :D
Posted at 03:00 am by rosabjork
Permalink
May 17, 2005
Allt gott tekur sinn enda... en þetta er ekki búið! ;)
Þetta var rosa fín og róleg helgi. Er ekkert smá sátt við hana og get ekki beðið þangað til á næstu helgi. Ég fer nefnilega mjög sennilega út úr bænum og eins og allir vita þá er endalaust gott að fara úr borg óttans og í sæluna út á landi! ;D
Ég var annars að vinna föstudag og laugardag á Pravda. Það var samt bara svona ágætt að gara og á laugardeginum var lokað snemma. Eða eitthvað um kl 4. Þetta er nú alveg ágætt, allavega fín aukavinna. Veit samt ekki hvað ég á eftir að haldast þarna lengi. Var búin að steingleyma hvað fólk getur verið óþolandi þegar það er fullt! hehehehe en þetta kannski venst. Það er samt alls ekki slæmt að vinna þarna. Fólkið sem vinnur þarna er alveg rosalega fínt lið. Allt annað en liðið sem var að vinna á Astró þegar ég var þar! Allir yfir hina hafna og eitthvað svoleiðis rulg. Svo er maður að kynnast alveg haug af liði þarna.
Ég var svo bara róleg á sunnudagskvöldinu, ætlaði að fara á Nasa á Dave Clark en hætti bara við og ákvað að vera bara heima og sé ekkert eftir því! Vaknaði svo bara snemma og notaði sunnudaginn vel.
Ég get ekki beðið eftir að fara á æfingu eftir vinnu. Er ekkert búin að fara síðan á fimmtudag. Ákvað nefnilega bara að vera heima og hvíla mig áður en ég færi að vinna! Gutti og Garú komu svo í heimsókn! Rosalega gaman að hitta Garú, langt síðan ég sá hana síðast. Hún er alltaf jafn sæt og æðisleg! :D
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili svo ég segi bara bæbæ og núna er um að gera að knúsa alla sem ykkur þykir vænt um. Það er svo gott og maður gerir ekki nóg af því!!! :D :D
Kv. Rósa Björk ''alveg einstaklega happy þessa daga!'' ;)
Posted at 04:11 am by rosabjork
Permalink
May 12, 2005
Já ég er víst með bloggsíðu og þarf að blogga!!! hehehe
Góðan dag góðir hálsar! Það er nú bara fínasta veðrið í dag.. maður er nú samt alltaf að vonast eftir að góða veðrið fari að koma eða réttarasagt SÓLIN!! Hvað er hún eiginlega!!????? ;/
Ég er ennþá að hlægja að helginni þegar ég hitti Júlíu, Evu, Gunna, Írisi og Garðar! Það var ekkert smá gaman hjá okkur!! kannski ekki akkurat þegar við vorum í poppspilinu veit ekki almennilega hvað það heitir en það var sko ekkert voða skemmtó!! hehehehe enda kláruðum við það ekki! En hvað um það held bara að ég hafi sjaldan hlegið svona gríðalega mikið og akkurat þennan dag! Garðar gat td aldrei munað að notað bjölluna, svaraði alltaf og gaf okkur þá svarið! hehehehehehe... svo var hann heldur ekki góður í -pant´ekki reglunni eða Bunny!! -smá einkahúmor en hann þurfti alltaf að sækja allt og gera allt því hann var ekki nógu fljótur að segja pant´ekki!! hehehe sam varð svo seinna Bunny og puttarnir settir á hausinn eins og eyru. En það er örugglega ekki gaman að lesa þetta nema fyrir þá sem voru á staðnum!
Gunni fór svo á kostum með sínar ''hetjusögu!!!'' og svo má ekki gleyma ættarmótinu á Reykjanesbrautinni!! hehehehe Þegar Gunni hitti bróður sinn Kidda sem var í öðrum bíl og var með Magga Sam og þeir voru með krossara í kerru og þeir voru þarna eitthvað að spjallinu og fullt fullt af bílum fyrir aftan! Shit það var vandræðalegt en samt ógeðslega fyndið!!! ;D Var með harðsperrur í maganum eftir þennan dag!
Svo af honum kisa litla.. ég ætla að skýra hann Snúð. Var mikið að spá í því fyrst en ætlaði að hafa alla möguleika opna! Málið er að pabbi átti litinn kisa sem hét Snúður sem var í einstaklega miklu uppáhaldi hjá mér því að mamma vildi ekki kisu. Svo eitt sumarið þá flutti pabbi og Fanney í sveit til foreldra hennar og Snúður og heimiliskötturinn voru ekkert voða sáttir við hvorn annan og það þurfti að lóa öðrum. Málið var að heimiliskötturinn sá um mýsnar í hlöðunni og því varð Snúður fyrir barðinu! reyndar komst ég ekki að þessu fyrr en mörgum árum seinna það var sagt allt annað við mig! En allavega þá fær kisi litli að eiga hans nafn.
Jæja ætla í mat! Ciao allir og hafið það gott í dag!! :D
Posted at 04:38 am by rosabjork
Permalink
May 9, 2005
Á föstudaginn fór ég til mömmu og við fórum á æfingu! Það var reyndar ekki tekið mikið á því, því að ég var svo þreytt eitthvað. Enda búið að vera mikið að gera. Flytja og svona!
Ég fór svo heim og Dabbi kom í heimsókn og við gláptum eitthvað á tvíð.
Ég ætlaði svo að vera rosa dugleg og vakna á laugardagsmorguninn og fara á æfingu en var bara ekki að nenna því. Langaði að sofa einu sinni út! Seinastu helgi vaknaði ég báða dagana snemma til að fara á æfingu og átti líka eftir að fara vinna á Pravda um kvöldið.
Ég var svo bara eitthvað að dunda mér við það að taka til og þrífa og svona heima. Fór svo með Dabba í ljós og við fórum í ljós og fengum okkur að borða á KTF og svo ís í eftirrétt.. algjört nammi!
Ég fór svo til mömmu upp á keramikstofu og málaði smá hjá henni. Er ennþá að mála þennan blessaða vasa! Er samt að verða búin! :D
Kíkti svo aðeins á Stínu og náði í myndavélina sem ég er með í láni hjá Stensa. Hún var að elda handa ömmu sinni, systur sinni og fleirum sem voru að koma í mat! Rosa dugleg..
Fór svo heim til mömmu í geggjaðan grillmat! nammi namm fæ bara vat í munninn þetta var svo rosa gott!! :) Ég fór svo og sótti Kalla hann var að fara í afmæli eins og ég en reyndar ekki sama afmælið.. ;) Komum reyndar við heima og hann fékk að sjá litla yndið mitt! Já það er kannski best að taka það fram að nýji maðurinn minn er litli kisi en ekki einhver gaur eind og sumir vildu misskilja! hehehe ;)
Ég kíkti svo í afmæli til hennar Írisar. Var svo ekki að langa í vinnunna! Það var orðin rosa stemming í hópnum.. En ég fór í vinnunna kl 12. Það er ekkert smá almennilegt lið þarna og rosa fínt að vinna með þeim! Það voru samt nokkrir sem horfðu á mig og voru ekkert smá hissa á því að sjá mig þarna meginn við barborðið! Meirað segja DJ-inn þekkti mig! *hóst!* ;-/ skil það ekki alveg er aldrei þarna!! ;) Ég var svo alveg á fullu til kl 7. Settist ekki einu sinni niður og það var ekkert smá gott að setjast niður eftir vaktina! Settumst öll niður og sjölluðum aðeins saman áður en við fórum heim!
Júlía og Gunni voru svo hjá mér í gærkvöldi og við lágum heima eins og klessur með litla kisa og gláptum á sjónvarpið! --Þið sem hafði ekki séð hann verið að koma í heimsókn og sjá litla kallinn hann er ekkert smá mikil rúsina! Algjör kelirófa og sama hjá hverjum hann er hann vill alltaf kúra! heheh sem er mjög gott því það er best í heimi að kúra og sérstaklega hjá honum, hann er svo mjúkur og góður!! :D Jæja maginn farinn að garga á mat! Heyrumst þá bæbæ :D
Posted at 05:55 am by rosabjork
Permalink
May 6, 2005
KOMIN MEÐ MANN!!! LOKSINS!!!!! :D
Þetta var sko viðburðaríkur dagur í gær!!! Alveg notaði hann allan til fulls.. :D
Vaknaði kl hálf 10. Fór til mömmu og við fórum í Spinning---takk fyrir. Eftir 5 mín þá hugsaði ég með mér, guð minn góður hvað er ég búin að koma mér út í! Ég á eftir að springa og missa andan og ég veit ekki hvað og hvað! En vitið menn. Ofurkonan hún Rósa hún var allan tímann og gerði allt sem hann sagði okkur að gera.. 4 uppi, 4 niðri, HJÓLA UPPI, KOMA SVO, TAKA Á ÞVÍ!!! 8 uppi, 8 niðri HJÓLA UPPI Í 30 SEK!! ÁÁÁFFRAM!! (úff hvað er með þetta lið!! ;/ shit ) TAKA ARMBEYGJUR Á STÝRINU, UPP NIÐUR UPP NIÐUR! Hélt að mínir dagar væru taldir en hefði þetta til enda og er sko sannarlega sátt! :D og ekki má gleyma gaurnum sem var að kenna okkur, hann var nú bara nokkuð sætur!!! ;)
Þurfti svo að bruna á Pravda, sótti um vinnu þar og það var bara tekið vel í þetta og ég byrja á morgun! Ekkert smá sátt. Alveg til í að fá smá auka pening og vera að vinna þarna í stað þess að vera að skemmtamér þarna á dansgólfinu! Get bara skemmt mér á barnum og dansað þar og fengið borgað! Vei! ;) ;)
Fór svo að spjalla við hana Selmu ''mína'' það gekk bara ágætlega þegar ég loksins hitti hana! Hún ætlaði að hitta mig á 22 en meikaði ekki að hitta mig og kærasti hennar svaraði símanum og hún gat ekki talað við mig af því að hún var ''hrædd'' við mig! Hvað í ósköpunum ætti ég að gera henni!! og það inná 22... En ég fór þá bara til hennar og við gátum spjallað aðeins saman!
Fór svo heim og Elli kom og sótti tvo lasyboy stóla sem ég gaf honum! Hann var meirað segja að spá í því að fara með einn heim go taka hinn méð sér út á land því hann var að fara að veiða.. heheheheheh hann er nefnilega með pallbíl! Hann er ekkert smá fyndinn!! ;D
Ég kíkti svo á Stínu fínu, hún var sko aldeilis dugleg! Þreif allt hátt og lágt.. mátti valla vera að því að stoppa og tala við mig! hehehehe. Annars er hún búin að vera rosa dugleg í skólanum eins og hún Júlía auðvitað! Tek ofan fyrir ykkur stelpur mínar! Við erum svo að spá í því að fjárfesta í línuskautum og bruna á þeim í sumar... Hlakka ekkert smá til þess að gera eitthvað skemmtilegt úti í sumar!!! :D Ég fór svo til mömmu í mat! Eldaði dýrindis kjúlla.. ekkert smá góður. Fékk mér svo ís í eftir rétt og langaði að æla ég var svo södd! Oj ekki beint geðslegt!!! hehehehehe
Jæja svo núna kemur aðal málið!!! :D Geiri hringdi svo í mig! Hann var á leiðinni upp í hesthús það sem daddaraaaaaa litli kisinn minn beið eftir mér!!! :D :D :D Ég fékk sem sagt lítinn kisa í gær.. hann er mesta rúsínan.. :) Hann var reyndar frekat hræddur í bílnum á leiðinni og mjálmaði bara og mjálmaði!! Og mjálmaði aðeins meira þegar hann kom heim ef hann sá mig ekki!! m;) Ég tók hann svo upp og lagði hann á bakið og klóraði honum aðeins og hann stein sofnaði bara!!! :) Var alveg viss um að hann mundi vakna og væla í alla nótt! En hann gerði það ekkert leifði mömmu sinni bara að lúlla í alla nót, Reyndar vaknaði ég eitthvað um kl 5 í morgun og þá horfði hann á mig með annað augað lokað! Fast saman, kominn með kvef eða eitthvað. :( Ég fór þá fram og hitaði vatn og tók það í burtu og fór aftur að sofa og hann sofnaði líka!! :) Fannst samt mest leiðinlegt að þurfa að fara og skilja hann einan eftir!! Örugglega einmanna, var nátturulega með fullt af félagsskap þarna í hesthúsinu! ;(
Ætla samt að vera og knúsa og hjúkra honum í allt kvöld! :D
Hafið það gott um helgina.. Kv. Rósa ''mamma'' :D
Posted at 04:44 am by rosabjork
Permalink
May 4, 2005
FRÍ Á MORGUN! FRÍ Á MORGUN!
Þetta er svoooo gaman að ég elska það !! :D Alltaf frí.. Núna er ég búin að flytja allt dóti og skila af mér hinni íbúðinni! Svaf fyrstu nóttina í nýju íbúðinni og það var bara rosa fínt! Kannski pínu einmannalegt þar sem hún er miklu stærri en hin ''íbúðin'' hehehehe :)
Mamma kemst ekki á æfingu í dag svo ég fer bara ein! Var að spá í því að taka þá bara vel á þvi á brettinu eða eitthvað og fara svo í gufu. Er alveg orðin húkt á gufu líka! Það er bara það besta í heimi skal ég segja ykkur. Ekki of lengi samt! Það get ég allavega ekki! Var svo að spá í að fara með mat til mömmu eftir æfingu því hún kemst ekkert frá! En ég er farin núna.. -- Á ÆFINGU JESS!! loksins! :)
Posted at 09:45 am by rosabjork
Permalink